Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir
Leikskólinn Foldakot Prenta
Almennar fréttir
fimmtudagur, 10 júní 2010 15:53
Leikskólinn Foldakot
stendur á sólríkum og fögrum stað
í hjarta Foldahverfis.

Foldakot_2010.jpg

Einkunnarorð leikskólans eru:
Gleði - upplifun - listir - leikur
 
Helstu markmiðin eru að allir nemendur styrkist til sjálfsbjargar og sjálfsöryggis, efli hjá sér frumkvæði, sköpunargleði og sjálfstæði.
 
Samkvæmt aðalnámskrá leikskóla (1999) eru námsviðin sex: Hreyfing, málrækt, myndlist, tónlist, náttúra og umhverfi og menning og samfélag. Þau undirstrika alla þætti skólalífsins í Foldakoti, ein sér eða samþætt og höfuðnámsleiðin er leikurinn.
 
Foldakot hefur verið þátttakandi í stóru þróunarverkefni ,,Að skapa heiminn“ ásamt nokkrum leikskólum borgarinnar þar sem hugmyndafræði Reggio Emilia er rauði þráðurinn.
 
Foldakot er vinaleikskóli – allir æfa sig í að vera skólavinir og vinna  með Gildin í Foldakoti, samkvæmt þankahríð starfsfólksins og foreldranna, t.d. gleði, vinátta, jákvæðni, kjarkur, virðing og vellíðan. 
 
Ef trúnaður, öryggi og kærleikur ríkir milli heimila og leikskólans
þá hafa allir góð tök á skólabragnum.
 
 
foldakot_kort.JPG
Foldahverfi - götukort
 
Takk fyrir sveitasamveruna! Prenta
Almennar fréttir
fimmtudagur, 20 maí 2010 16:20

Takk fyrir frábæra sveitaferð
kæra skólafólk í Foldakoti!

P5200147__Small_.JPG

 

Myndir úr ferðinni er hægt að nálgast í mynda albúminu okkar!

 
Heimsókn í sveitina Prenta
Almennar fréttir
þriðjudagur, 18 maí 2010 16:21

 

Heimsókn í sveitina okkar!

sveitin.jpg

 

Þá er hin árlega sveitaferð, sem foreldrafélagið okkar frábæra bíður upp á, á næstu grösum.
 
Fimmtudaginn 20. maí skundum við af stað frá Foldakoti á slaginu 12:00 að Grjóteyri
 en ekki 12:30 eins og auglýst var.
 
 
Sjáumst hress í sveitasælunni!
 
 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 1 af 24

Matseðill dagsins

04.09.2010

Enginn matseðill er skráður á þennan dag

Matseðill mánaðarins

Verði ykkur að góðu!


 
Leikskólinn Foldakot | Logafold 18 | 112 Reykjavík | s: 587 3077 | Póstur | Viðburðir | Fréttir